3. október 2007

58 :: Ógó leiðinlegur gaur maður

Það er merkilegt hvernig sumir hlutir komast til skila sama á hvaða tungumáli þeir eru. Ef einhver ókunnugur kemur til manns og er svangur, þreyttur eða vantar virkilega kaffisopa er maður ekki lengi að fatta hvað vandamálið er. Nú, eða ef þessi ókunnugi er eins og einn gaurinn í skólanum hjá mér, þá skilur maður frekar snarlega að hann er ógeðslega leiðinlegur.

Ég er alveg löngu búinn að gefa upp þá hugmynd að ég sé eitthvað sérstaklega umburðarlyndur, eða yfir höfuð góð manneskja, en að þola ekki mann sem ég get ekki átt samskipti við öðruvísi en með bendingum er nýtt fyrir mér. Aumingja greyið hefur engann séns; hann er arabi sem lítur út eins og hestur í framann, er sæmilega vitlaus og eyðir öllum sínum tíma í að bombarda kennarann með hverri einustu hugmynd sinni að lausn, þrátt fyrir að þær hafi flestar fæðst andvana.

Þegar ég verð kóngur verður hann ekki fyrsti maðurinn fyrir framann vegginn, en það er tæpt.

Engin ummæli: