57 :: Bölmóður
Þetta verður ekki góður dagur.
Ég fékk mér netið um helgina og einhver gaur kemur á eftir til að græja tenginguna. Hvenær kemur hann? Jú, á milli 10:00 og 18:00, sem þýðir að ég þarf að vera heima í allann dag.
Það þýðir að ég missi af stórskemmtilegum fyrirlestrum í Algebru og Línulegri fellagreiningu, og dæmatíma, en þeir eru svolítið á mis svo það skiptir ekki miklu máli.
Að auki hefur heita vatnið verið bilað frá því á föstudaginn svo allt uppvask hefur verið hálf vafasamt síðan þá, en það sem verra er hef ég ekki komist í sturtu síðan þá.
Ef við bætum svo við að rétt í þessu var ég að kaupa brauð á fjóra og hálfa evru, sem er algerlega fáránlegt en af því ég er Íslendingur muldraði ég bara "fokk" og lét mig hafa það, sést að byrjunin er ekki góð og það eru ekki horfur á að ástandið batni.
Og það er moskítófluga í herberginu mínu, ég veit bara ekki hvar. Ef ég hata eitthvað meira en heimsspekinema, þá eru það moskítóflugur.
... heyrðu, ég held þetta reddist bara. Eruði að grínast með þetta brauð eða?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli