6. október 2007

59 :: Ég er óháður hliðrunum

Ég er í Frakklandi. Hér kosta hlutirnir skít og kanil; ég hef keypt kassa af bjór á tæpar fimm evrur. Það er ennþá sæmilega hlýtt; vikan hefur verið nokkuð nöpur en samt hefur hitinn ekki farið niður fyrir sautján gráður. Það er laugardagur, hér er hlýtt, og hér er ódýrt að drekka.

Og ég er heima að drekka bjór, hlusta á tónlist og forrita í Bash. Við getum huggað okkur við að vita að sumir persónueiginleikar mínir eru óbreyttir við hliðrun.

Engin ummæli: