30. september 2007

56 :: Fokk hvað ég er kúl

Ég ákvað að vera óhamingjusamur með að stór hluti tónlistarinnar minnar er á m4a formi; að hluta til vegna þess að það er smá vesen að finna spilara fyrir þetta form og það flyst illa á milli manna, en aðallega vegna þess að ég var orðinn leiður á að læra og vantaði eitthvað til að gera.

Sex klukkutímum seinna er ég búinn að leysa þetta vandamál; með töfrum Linux og skeljarinnar er ég búinn að búa til tvö lítil unit. Annað fór í gegnum alla tónlistina mína og breytti öllum bilum í skráarnöfnum í undirstrik; þetta er tæknilegt smáatriði sem gerir lífið einfaldara í skelinni. Hinu get ég sigað á möppu með m4a skrám, það breytir þá skránum í mp3 form, áttar sig á smáatriðum eins og hljómsveit, plötu, lagaheiti og númeri lags og smellir því í id3 tag á mp3 skránna. Ég get svo látið þetta malla í nótt til að breyta þessum n lögum sem við á.

Lífið er stutt og heldur ekki áfram eftir dauðann, því er mikilvægt að vera svalur eins oft og hægt er. Og ég veit hreinlega ekki hvernig maður nær meiri svelgju en með þessu, sveimérþá.

Ég er, eins og alltaf, þinn Megaþþ.

Engin ummæli: