20. ágúst 2007

45 :: Íslenska mafían

Ef allt gengur upp á morgun er jafnvel stutt í að ég verði sammála Laukki um að Íslendingar séu frábært fólk.

Á sirka tveim tímum er ég búinn að fá fría gistingu í tvær nætur í Grenoble með guided tour um borgina og mjög góða vísbendingu um fólk sem vill leigja Íslendingum ódýrt herbergi nærri miðbænum, bara með því að hringja í fólk sem ég kannast við úr skólanum og hefur verið þarna úti.

Svo bind ég miklar vonir um að Couchsurfing reddi ókeypis gistingu og góðum félagsskap í París yfir nótt. Þetta, ásamt því að þegar ég gerði lista yfir það sem þarf að redda og sá að það var ekki svo mikið, hefur gert mig alveg einstaklega rólegann yfir þessu öllu saman.

Þetta er alveg spurning um að fara að hlusta á ,,The kindness of strangers'' með Nick Cave.