44 :: Vei!
Yeah, baby! Ég náði loksins í einhvern í háskólanum í Grenoble áðan, þau eru víst búin að vera í sumarfríi í sirka einn og hálfan mánuð, og fékk að vita að allt tungumálavesen yrði örugglega ekkert mál og ég gæti bara komið. Ég er sem sagt á leiðinni í master í tvinnfallagreiningu í Institut Fourier við Université Joseph-Fourier í Grenoble.
Ókei... núna þarf ég að redda mér íbúð. Og námsláni. Og alls konar pappírum fyrir innritunina. Og fari frá París til Grenoble. Og kannski stað til að gista á í nokkra daga. Og... og... á tíu dögum.
Á einhver bréfpoka sem ég get fengið að anda í í smástund?