9. ágúst 2007

39 :: Mike Patton > allt

Síðan um helgina er ég dottinn í þvílíkann Mike Patton aðdáunarpakka að það er eiginlega hætt að vera fyndið. Mig grunar að þetta hafi byrjað í partíinu hjá Bjögga þegar Bubbi og Gaddi voru að missa sig yfir California með Mr. Bungle, ég verð alltaf svo móttækilegur fyrir tónlist þegar ég er nett drukkinn.

Alla vega er næstum ekkert annað en mismunandi hljómsveitir Mike Patton búið að vera í spilun síðan þá. Þökk sé internetinu komst ég í allar plöturnar hans - herre gud hvað þær eru margar! Sefur maðurinn ekki? - og er búinn að vera slefandi síðan þá. Mig langar
alltaf að deila svona hlutum, svo ef þú vilt hlusta á frábæra og missúra músík geturðu tékkað á kynningarpakka hér.

Í þessari skrá er að finna

  • Faith no more - The real thing
  • Peeping Tom - Samnefnd
  • Mr. Bungle - California
  • Fantomas - Director's cut
Þessu er nokkurn veginn raðað í vaxandi súrleikaröð. Þetta eru allt frábærar plötur, The real thing tókst meira að segja að fá mig til að fíla Faith no more sem ég hef aldrei gert fyrr en nú. Af þessum held ég samt að síðustu tvær séu uppáhaldið mitt í augnablikinu. Ég get bara ekki slitið California úr eyrunum og eftir að hafa verið húkkaður á ,,Retrovertigo'' og ,,Pink cigarette'' ættir þú ekki að geta það heldur, og Director's cut er svo stórkostlega súr að það ættu að vera til bíómyndir um það.

Allar þessar plötur eiga samt sameiginlegt að þurfa smá tíma til að meltast, en mismikinn þó. Ég þori samt að lofa því að þú munt aldrei sjá eftir þeim tíma.