40 :: Mmm... bjór
Ég vil taka þetta augnablik til að þakka hverjum þeim sem fundu upp bjór. Þegar mann langar ekki að hugsa um eitthvað, eða hlutirnir virka ekki, þá er bjórinn til staðar og svínvirkar í hvert einasta sinn. Takk strákar.
Það eru... tveir dagar, í mesta lagi, í að ég viti nákvæmlega hvað ég ætli að gera næsta ár eða tvö. Eða ja, nákvæmlega upp að vissu marki, maður hefur þá alla vega svona almenna hugmynd. Kostirnir eru tveir:
i) Vera á Íslandi og vinna.
ii) Fara í master til Frakklands.
Í raun og veru er mér nokkurn veginn sama hvort verður fyrir valinu; ég á eftir að skemmta mér ágætlega hvort sem verður og það er mikilvægi parturinn. Til að segja alveg satt fer valið eftir hvort hlutirnir ganga upp með Laukki eða ekki. Ef þeir ganga er ég hvort eð er ári á undan og get vel hugsað mér að slappa af í smástund, og ef ekki held ég að tilhugsunin um að flytja af landinu og sökkva sér í vinnu líti ágætlega út.
Það eina sem skiptir máli í lífinu er að hafa gaman af því eins oft og mögulegt er. Báðar leiðirnar eiga eftir að vera stórkostlega skemmtilegar, svo að vissu leiti skiptir valið ekki máli. En þið megið geta sjö sinnum hvorn kostinn ég hugsa um þegar ég fer að sofa í kvöld.