38 :: Samskiptabrot
Jafnvel á okkar tímum,
þar sem allir eru aðeins símtal í burtu,
eru fjölmargar ástæður fyrir þögn þinni.
Þú gætir verið batteríslaus,
ekki í símasambandi,
með slökkt á símanum,
inneignarlaus,
eða ekki vilja tala við mig.
Og samt er síðasta ástæðan
sú eina sem ég veiti einhverja athygli.