3. ágúst 2007

37 :: Hreingerning

Ég var að átta mig á að ég á fullt, fullt af dóti sem liggur bara heima og gerir ekki neitt. Við erum að tala um bækur, geisladiska og dvd diska sem ég hef ekki snert í fleiri mánuði.

Mig langar eiginlega ekkert að halda upp á hluti sem ég hef ekkert að gera við, sérstaklega þar sem ég er örugglega að fara að flytja til útlandsins, og ætla þess vegna að selja meirihlutann af þessu á skid og ingeting.

Ég er að taka saman lista yfir allt þetta dót, hann er að finna hér. Akkúrat í augnablikinu eru bara bækurnar komnar inn, en dvd diskarnir koma næstir og svo geisladiskarnir. Endilega kíktu og sjáðu hvort þig langar ekki í eitthvað þarna; ég ætla að láta þetta allt fara á 300 kall stykkið svo þú ættir að geta gert ágætis kaup.

[Viðbót:] Já, ef þú þekkir mig ekki neitt en langar samt í eitthvað af þessu er síminn 868-6898.
[Viðbót 2:] Geisla- og dvd-diskarnir eru komnir inn, þannig listinn er alveg kominn.