29. júlí 2007

36 :: Tileinkað, en ekki um, Jóhönnu

Takk fyrir sms-in, þau voru mjög fyndin. :)

Ég kom sjálfum mér frekar á óvart áðan. Í algjöru leiðindakasti fór ég að pæla í hvernig maður gæti fengið gluggastjórann á tölvunni minni til að færa fókusaðann glugga fremst á skjáinn, því af einhverjum ástæðum er bara innbyggt í Evilwm að lækka þá.

Svo ég náði í source-kóðann, öskraði ,,Éemegaþþ!'', og lúðaðist eins og vitleysingur í C++ kóða í klukkutíma. Afrakstur alls þessa er að nú get ég ýtt á Control + Alt + Bil og fengið hvaða glugga sem er fremst á skjáinn. Haha!

Jebb, maður verður ekki mikið svalari en þegar maður fiktar í source-kóðanum á gluggastjóranum sínum.

Til að reyna að bæta fyrir gríðarlega nördalegt efni þessarar færslu vil ég benda á H.Í. síðuna mína þar sem finna má plötur með böndum eins og Army of anyone og Circa survive; Baddi er eins og alltaf ótæmandi uppspretta góðrar tónlistar. Það fyrra er samstarf söngvarans úr Filter og fleiri góðra manna og það seinna er virkilega skemmtilegur poppmetall.

Í öðrum fréttum héti ég ,,Sir Gutless Bastard'' ef ég væri riddari. Ég skil bara ekki hvað er að mér að hafa ekki kysst hana meðan ég hafði tækifærið. Það er erfitt að vera hálfviti.