33 :: Fuck you Apple umboð!
Nú skal fagnað með að hlusta á ,,Now you're a man'' með DVDA og drekka bjór. Bæði komst ég inn í háskólann í Grenoble, og er nokkuð viss á að ég endi þar í tvinnfó hjá Demailly, og það sem er ennþá betra; ég var að gera við iPodinn minn!
Fyrir svona tveim vikum hætti að heyrast hljóð úr hægri heyrnartólinu, og eftir að ég prófaði nokkur önnur heyrnartól komst ég að því að jackinn var ónýtur. Eftir smá google leit komst ég að því að þetta er nokkuð algengt vandamál og það er hægt að láta Apple umboðið laga þetta. Samtal mitt við manneskju hjá Apple umboðinu var einhvern veginn á þessa leið:
,,Getið þið reddað þessu?''
,,Já, það er ekkert mál. Við þurfum bara að panta varahlutinn frá Apple og iPodinn þinn verður eins og nýr eftir sex vikur.''
,,Sex vikur? Er virkilega ekki hægt að fá hann hraðar?''
,,Nei, því miður. En við getum selt þér svona útvarpssendi sem þú getur tengt heyrnartólin í og notar ekki headphone jackinn, þá geturðu líka hlustað á iPodinn í útvarpinu.''
,,Mmm... ok, það virkar.''
,,Já, þeir eru því miður uppseldir. Kíktu bara reglulega hingað og athugaðu hvort við höfum ekki fengið sendingu.''
Sem betur fer var ég með piparúða á mér og gat bætt líðan mína töluvert með tilgangslausu ofbeldi gagnvart þessari merkilega gagnslausu stelpuskjátu.
Nokkrum google leitum síðar fann ég síðuna I fix ipods fast sem selur varahluti í iPod, býður upp á ókeypis myndbönd sem sýna hvernig maður skiptir um hitt og þetta, og gerir við iPodinn ef þess er óskað. Reynar fann ég headphone jackinn aðeins ódýrari annars staðar, en hann kom í gær eftir viku bið. Með að fylgja einu vídjóinu af I fix ipods fast tók það svo hálftíma að skipta um jackinn, og allt dæmið kostaði svona 7000 kall með sendingarkostnaði og tollum.
Mér finnst þetta merkilega góður árangur miðað við reynslu mína af svona hlutum, sem samanstendur einungis af því að hafa klúðrað öllum tilraunum í Eðlisfræði I á sínum tíma.