34 :: Andstaðan við Henry Chinaski
Ég veit
að við eigum aldrei eftir að vera saman
og segja börnunum skemmtilegar sögur.
Og að í besta falli
mun ég vita hvað ég klúðraði þessu illa
og misskildi eina ferðina enn.
En samt er það þess virði
þegar ég kippist til þegar síminn titrar
og held í smástund að það sért þú.