31 :: Búja!
Ég komst inn í háskólann í Toulouse! Eða það held ég alla vega, bréfið sem ég fékk var á frönsku.
Þetta er alveg strangt jákvætt því ég er búinn að vera í lausu lofti með hvað ég ætla að gera í haust frá því ég útskrifaðist. Núna hef ég alla vega eitthvað, ætli maður geti ekki tekið því að fara til suður-Frakklands, drekka rauðvín og lesa tvinnfallagreiningu eins og hverju öðru hundsbiti.
Hmm... núna þarf ég samt að heimsækja LÍN, bíða eftir svörum frá hinum skólunum, komast að hvort ég þarf landvistarleyfi eða ekki, finna íbúð, flytja út og sa videre. Man.
Fokkitt, ég geri það eftir helgi. Núna ætla ég að vera fullur í brúðkaupi á Akureyri.