26. febrúar 2007

18 :: Holy shit

Það er kominn 26. febrúar. Prófin byrja 29. apríl, eða eftir rúmar átta vikur. Fyrir þann tíma þarf ég að vera búinn að finna mér sumarvinnu og sækja um skóla í útlöndum.

Svo þarf ég einhvertímann við tækifæri að átta mig á hvort ég ætla að hætta eftir master og fara að vinna eða taka doktor og dæma mig með því til að vinna í háskóla; sem sagt hvað ég geri við restina af lífinu.

Ég er að spá í að setjast út í horn og anda í bréfpoka í smástund.