19 :: Usb á eyðieyju
Ég komst að því áðan hvaða 10 plötur ég myndi taka með mér á eyðieyju. Ég var nefninlega að setja upp stýrikerfið í fartölvunni aftur og til þess að hafa eitthvað að hlusta á í skólanum á morgun tróð ég 10 plötum á usb lykil og flutti yfir. Ég endaði með:
Beck - Sea change
Dredg - El cielo
Eels - Electro shock blues
Elliot Smith - Figure 8
Gavin Portland - iii: Views of distant towns
Low - Things we lost in the fire
Mika - Life in cartoon motion
Neutral Milk Hotel - In the aeroplane over the sea
Polyphonic Spree - Together we're heavy
Silverchair - Diorama
Persónulega hefði ég gert ráð fyrir einhverju frá Mars Volta, Pixies og Smashing Pumpkins þarna en ég býst við að ég kunni plöturnar þeirra nokkurn veginn utanað núorðið. Alger lykilplata þarna er Electro shock blues. Þó einu lögin á henni væru "3 speed" og "Climbing to the moon" aftur og aftur væri hún samt þarna. Hún veitir mér fullkomna hugarró þegar ég þarf á henni að halda.
Life is funny
but not ha-ha funny
peculiar I guess.
You think I've got it all going my way
then why am I such a fucking mess?
Eels - 3 speed