17 :: Lovesounds / I am an excellent steel horse
Ég er að gera verkefni í Tölulegri greiningu þessa vikuna. Reyndar ekki bara ég, heldur líka sirka 150 aðrir nemendur í HÍ, en flestir þeirra eru verkfræðinemar og því frávik. Alla vega hef ég haft vikuna til að rifja upp hvers vegna ég er ekki í tölvunarfræði. Eins og Andreas vitringur sagði einu sinni, þá er mjög gaman að vinna hugmyndavinnuna; það er að fá hugmynd og sjá af hverju hún virkar eða virkar ekki. Hins vegar er það að forrita eins og að hreinskrifa dæmi; hundleiðinlegt og maður þarf þar að auki að debugga kóða. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem er refsað með því að debugga kóða. En maður fær flottar myndir úr þessu, þannig þetta er ágætt í heildina.
Nýja platan hans JT er alveg frábær. Alla vega virðist hún vera það við fyrstu hlustun, ég er nú ekki nema hálfnaður með hana en fjandinn hvað þetta er gott. Fleira sem er gott er platan Are we not horses? með Rock Plaza Central, sem er þemaplata um vélhesta sem lenda í tilvistarkreppu þegar þeim er sagt að þeir séu ekki alvöru hestar. Ég ætla að segja sem minnst um hana núna svo ég geti sagt eitthvað um hana þegar ég dæmi hana fyrir Rjómann, en það er óhætt að segja að hún sé mjög skemmtileg á allan hátt.
Ég er spurður að því í hverri viku hvernig gangi að sækja um í skóla og hvenær ég flytji til út. Svarið er að það gengur ekkert og ég hef ekki hugmynd um það. Umsóknarfresturinn í skólanna þarna úti rennur í fyrsta lagi úr í maí, kennslan byrjar í október og þeir láta mann vita í september hvort maður komst inn eða ekki, þannig það verður mjög lítið um svör þangað til í haust. Kannski ætti ég að byrja að skálda svör?... það gæti alla vega orðið fyndið í smástund: "Yes, mister Grímsson, I have just proved the Riemann hypothesis and have been accepted to Princeton. Free of charge, of course. Ha-haha." (--> In my mind <--)
Ég ætla að hætta á að gera eins og aðrir bloggara, dagblöð, útvarpsraddir og pistlahöfundar, og hafa skoðun á fólkinu sem er að koma á klámráðstefnu til Íslands. En eins og stóri bróðir John Connor úr American History X benti á hefur allt sem þú ætlar að segja verið sagt betur af einhverjum öðrum, svo:
"This is my final point (oh thank you god). About drugs, about alcohol, about pornography (whatever that is). What business is it of yours what I do, buy, read, see or take into my body as long as I do not harm another human being on this planet. And for all those people out there who are having a little moral dilemma in your head about how to answer that question I'll answer it for you: none of your fuckin' business! Take that to the bank, cash it, and take a vacation out of my life."
-Bill Hicks
Það getur hver sem er sagt að klámiðnaðurinn sé flæktur í mansal, eiturlyf og almennan viðbjóð. Ef sá hinn sami getur sýnt mér að einhver þeirra sem er að koma hingað sé viðriðinn eitthvað slíkt skal ég mála skilti og mæta með honum í mótmælagöngu. Þangað til vísa ég á predikarann.