14. desember 2006

3 :: Þar sem ýmislegt kemur í ljós en margt er enn á huldu

Ég hef ákveðið tvennt:

Í fyrsta lagi mun ekki verða hægt að kommenta á færslurnar hér. Stjáni prófaði þetta í einni af mörgum endurholgunum sínum og lét vel af og ég held þetta verði góð tilbreyting. Svo nenni ég ekki að berjast við spam, en það var orðið mikið vandamál síðast.

Í öðru lagi ætla ég bara að skrifa 60 færslur og loka síðan síðunni. Mín reynsla er að ég fái hundleið á þessu dæmi eftir einhvern tíma og ég vil frekar svæfa síðuna sjálfur en að hætta smám saman að skrifa. Þetta er svona ,,nei mamma, Gulur er hundurinn minn'' pakki.

Fyrir áhugasama má nefna að talan 60 er valin vegna þess að Transmetropolitan blöðin voru nákvæmlega 60. Þau gengu að vísu í fimm ár en ég held að ruglið í mér vinni aðeins hraðar á.