14. desember 2006

2 :: Endanlega frumsendað líf

Ég hef svolítið spáð í að verða geðveikur. Ekki að ég sé að verða geðveikur, heldur að kannski væri fínt að taka meðvitaða ákvörðun um að vera bilaður í nokkur ár, svipað og Ford Prefect í Hitchhiker's Guide to the Galaxy.

Helst hef ég hugsað mér að fara yfir um á að reyna að setja upp frumsendukerfi fyrir mannlega hegðun og leiða þannig út persónulega kosti og galla fólks. Það væri alveg frábært að geta bara setið undir blikkljósunum og ryksuguskarkinu á safninu í VR-tvær og reiknað út hvort maður nennir að tala við næsta mann.

Nú gæti einhver haldið því fram að með þessu væri ég að dæma fólk fyrirfram, en svo er vissulega ekki. Eiginleikar fólks haldast fastir um leið og ég hef sett frumsendurnar niður á blað; ef ég leiði út að Jónas nágranni sé óábyrgur og leiðinlegur er ég aðeins að uppgötva hans sanna óumflýanlega eðli. Að umgangast Jónas í nokkur ár og deila með honum sigrum og sorgum hefði að lokum gefið ágæta nálgun á þessa niðurstöðu, en hefði ekki skilað sömu nákvæmni og vissu og útleiðsla persónuleika hans í formlega kerfinu mínu.

Svo þegar ég verð leiður á þessu get ég bara haldið því fram að ég hafi verið að stunda eitthvað svona félagsfræðidót allan þennan tíma, það veit enginn hvað það lið gerir hvort eð er.

Engin ummæli: