55 :: Örn tuttugu
Ég er að horfa á Spaceballs að ég held í fyrsta skipti. Sem er gott og blessað, Mel Brooks alltaf fínn þegar maður er í réttu skapi, en Bill Pullman leikur í henni.
Nema í hvert einasta skipti sem hann opnar munninn held ég í mér andanum og óska þess að hann öskri "Eagle twenty! Fox two!"(1); og í hvert einasta skipti sem hann opnar munninn verð ég fyrir miklum vonbrigðum.
(1) Koma svo, þú veist úr hvaða mynd þetta er.
2 ummæli:
Nei veistu, ég hef nefnilega aldrei horft á Independence Day. Það horfði ENGINN á þá mynd nema þú.
Úúú, ég heiti Stjáni, ég sá Independence Day.
Chav. :P
Skrifa ummæli