47 :: Pakka
Ég hef rekist á óvæntann ísjaka við niðursuðu eigna minna. Mér reiknast svo til að það sem ég ætli að taka með út komist fyrir í einn bakpoka og tvo kassa sem ég sendi eftir á. Annar kassanna er orðinn hálffullur af bókum og verður toppaðu af með fötum, en hinn er ennþá tómur. Það er vegna þess að í hann fara skáldsögur, geisladiskar og græjurnar mínar, en ég get ómögulega pakkað græjunum, sem fara auðvitað neðst í kassann, því þá þyrfti ég að hætta að hlusta á Fuzzy með Grant Lee Buffalo. Eftir Fuzzy tekur næsta víst eitthvað annað við, svo ég klára seinni kassann örugglega ekki fyrr en á morgun, sem slagar hátt í síðustu forvöð.
Þangað til þvæ ég bara ferðadressið, sem er gríðar smekklegt og samanstendur af gallabuxum, Zero bolnum mínum og svörtu rennanlegu peysunni. Ég hef prófað þessa samsetningu allt árið um kring hér heima, í Köben og á Jómfrúareyjum og held barasta að þægilegri föt finnist ekki.
Já... það er ekkert öðruvísi með þessa ferð til útlandsins en allar aðrar hjá mér; ég hlakka ekkert til. Það er örugglega vegna þess að til þess að hlakka til einhvers þarf maður fyrst að átta sig á að það er að fara að gerast, og ég hef aldrei verið þekktur fyrir að vera eitthvað sérstaklega með á nótunum. Í dag er verulega slæmur dagur hvað þetta varðar; ef það er til eitthvað sem heitir bráðaathyglisbrestur er ég með það, og ef ekki vill ég einkaleyfi á nafninu svo ég fái einhvern pening þegar það verður vinsæll sjúkdómur eftir fimm ár.