25. júní 2007

25 :: Hefnd nördanna

Ég hef alveg lúmskt gaman af því að fikta í tölvunni minni. Ókei, gamanið er ekkert svo lúmskt þar sem allir sem hafa talað við mig lengur en í korter vita af því, en það er gaman engu að síður. Það er alltaf hægt að gera eitthvað nýtt, sem er voða fínt á kvöldum eins og í kvöld þegar ég nenni ekki að finna mér eitthvað af viti að gera.

Í kvöld er ég sem sagt búinn að:
* Uppfæra Ubuntu stýrikerfið í nýjustu útgáfuna
* Setja upp og stilla Fluxbox gluggaumhverfið
* Ná í Emacs, sem er textaritill fyrir ofurnörda
* Setja upp Common Lisp, sem er eitt svalara forritunarmál sem ég hef séð
* Leita að góðum Linux-mörgæsa bakgrunni (þetta er mikilvægara en margan grunar)
* Finna gott letur á skelina
* Setja upp flottan óþarfa eins og Conky
* Hlaða niður og kompæla nýja Pidgin msn-forritinu
* Hlusta á Devin Davis, Porcupine Tree og drekka bjór meðan ég nördast eins og mongólíti (égemegaþþ!)

Útkoman er svo að drasl/fikt-tölvan sem ég keypti fyrir nokkrum mánuðum lítur svona út:




Qui est bien, qui est trés bien, mes amis.

Eftir þetta allt saman hef ég komist að tveim niðurstöðum: i) Ég er orðinn að meiri nörd en mig óraði fyrir að væri mögulegt fyrir svona tveim árum, og ii) mig bráðvantar áhugamál eða kærustu eða einhvern fjandann til að eyða tímanum í.

En ég á mér draum. Einhvern daginn ætla ég að kaupa litla 12" fartölvu og gera hana svona flotta. Svo ætla ég með hana á einhvern svona ítjúúú-stað þar sem allir eru með Makka og setjast við barborðið. Þegar einhver spyr að lokum
   ,,Hva, er þetta Windows eða?"
Þá sný ég mér leiftursnöggt við, segi
   ,,Nei!"
hoppa jafnfætis upp á barborðið og hvæsi gegnum samanbitnar tennur
   ,,Þetta er Linux!"
Svo sparka ég í munninn á treflinum og hleyp hlæjandi út meðan hann læsir sig inn á klósti, kjökrar varlega og semur prósaljóð um þetta allt saman.