24. júní 2007

24 :: Önnur lota

Áðan var ég vinsamlegast beðinn um að hætta þessari vitleysu og byrja aftur að blogga hérna. Eins og svo oft áður er mér sjálfum fyrirmunað að skilja hvað fólk sér í þessu samhengislausa rugli, en ég get svo sem haldið áfram að skrifa eitthvað. Af því tilefni langar mig að stela brandara frá Harry Potter og segja nokkur orð:

Fiðrildi. Safi. Tær. Óhljóð.

Afsakið þetta, en eins og einhver sagði er það merki frábærra listamanna að stela frá öðrum, meðan minni spámenn fá lánað. Ef ég væri nú bara frábær eða listamaður gengi þetta algerlega upp.

Það er samt þannig að mig hefur langað pínulítið til að byrja að skrifa aftur. Upphaflega hugmyndin með þessari fjöldatakmörkun á færslurnar var að ég gæti hætt áður en mér færi að leiðast þetta, það gekk nú ekki betur en svo að ég fékk hundleið á því að skrifa eftir sirka 20 færslur. En við skulum sjá hvort þetta gengur ekki betur í seinni lotu, og hvort maður nær ekki bara að klára upphaflega takmarkið? Þá er bara að finna eitthvað til að skrifa um...

Reynar er alveg af nægu að taka þessa dagana; ég var að útskrifast og er í millibilsástandi þar sem ég hef ekki hugmynd um hvað ég er að fara að gera í haust, og mun ekki vita neitt um það fyrr en í fyrsta lagi eftir mánuð, um síðustu helgi kynntist ég finnskri stelpu sem ég er nokkuð spenntur fyrir, en hún er að vinna úti á landi svo ég hef ekkert heyrt í henni síðan þá, ég er í mjög skemmtilegri vinnu uppi í Háskóla hjá Ragnari prófessor, og það er sumar og lífið almennt frábært.

Ég kem örugglega að þessu flestu þegar þannig liggur á mér, en við byrjum bara frekar almennt: Ég er hamingjusamur. Ég er ekki bara sáttur, heldur virkilega hamingjusamur þessa dagana, og það er orðið svolítið síðan ég gat virkilega sagt það. Aðalorsökin held ég að sé útskriftin, það var virkilega mikill léttir af því að klára þetta. Síðustu þrjú ár hef ég eytt meiri tíma uppi í skóla en getur nokkur tímann talist heilbrigt og ég hafði ekki tíma fyrir neitt annað, ég var bara í námi. Nú er ég búinn, það er komið sumar, ég er í skemmtilegri vinnu þar sem andrúmsloftið er afslappað, er að skrifa um tónlist fyrir Rjómann, hreyfi mig meira og drekk minna en í vetur, og er bara almennt hamingjusamari.

Ef bankinn myndi bara hætta að minna mig á að ég á engan pening væri þetta fullkomið.