15 :: Úff
Ég næ ekki alveg að lifa í núinu þessa dagana. Það eru bara þrír mánuðir þar til ég klára síðasta prófið mitt við HÍ, en ég get ekki beðið eftir að gera eitthvað nýtt svo ég upplifi dagana sem einhvers konar biðstofu.
Mig langar að byrja að vinna, mig langar í hlýjan vind, mig langar í eigin íbúð, mig langar til Argentínu, mig langar að lesa skáldsögur og mig langar að skrifa meira um tónlist.
Mig langar ekki í skólann á morgun.