30. janúar 2007

12 :: Fuck

Eftir sirka viku á ég að flytja fyrirlestur þar sem ég sanna setningu Mergelyans úr tvinnfallagreiningu. Ragnar prófessor lét mig hafa bók eftir einhvern vin sinn frá Svíþjóð þar sem þetta er gert með því að blanda saman mál og tegurfræði og tvinnfallagreiningu á skemmtilegan hátt. Sönnunin er ein og hálf blaðsíða og ég get ekki réttlætt eitt einasta ójöfnu eða jafnaðarmerki.

Fyrir ykkur sem hafa horft mikið á Scrubs er ágætt að sjá hér fyrir sér atriðin þar sem Turk verður snarbilaður og rífur hárið á sér af. Það er erfitt að vera vitlaus.

Ég er ekki búinn að hafa mikinn tíma til að skrifa eitthvað út af þessu, en þetta er eins konar lokaverkefni í stærðfræðinni. Við gerum enga langa ritgerð, heldur fáum eitthvað viðfangsefni og höldum fyrirlestur um það. Þetta var það síðasta sem ég var skyldugur til að gera í stærðfræðinni, svo mig vantar bara einingar til að útskrifast.

Annars veit ég ekki... The black parade, Home - Volume 5 og Views of distant towns eru fínar plötur.