3. janúar 2007

10 :: Formleg mál og ömurleiki

Gleðilegt ár, krútt! Eins og venjulega gerði ég ekki neitt yfir hátíðarnar nema vakna um hádegi, horfa á sjónvarp og sigra heiminn í tölvunni minni. Þess vegna hefur ekkert birst hér í svolítinn tíma, því af einhverjum ástæðum sem eru mér óskiljanlegar blogga ég aldrei þegar ég hef ekkert annað að gera.

En ég fékk úr næstsíðasta prófinu mínu í dag, það er úr Formlegum málum og reiknanleika, sem ég hef eitthvað tjáð mig um áður. Fyrir tæplega þriggja daga vinnu - og ég meina þetta, ég gerði ekkert í þessu námskeiði - fékk ég átta sem var næst hæsta einkunnin á eftir níu. Mér sýnist grafið hér að neðan gefa ágætis nálgun á einkunn úr þessu námskeiði, þar sem x-ásinn táknar vinnu í dögum og y-ásinn táknar lokaeinkunn:


Látið þetta ykkur að kenningu verða og takið aldrei Formleg mál og reiknanleika, nema: 1) Kúreki norðursins kenni það ekki, 2) Ykkur vantar virkilega þrjár einingar eða 3) Ykkur langar til þess.