21. desember 2006

7 :: Analtransform á þjöppuðum stjörnumengjum

Mmmm... rauðvín er svo miklu betra þegar maður er búinn í prófum. Það sama er eiginlega hægt að segja um allt, nema sennilega lærdóm. Eða hórdóm. Ég held að hórdómur sé nokkurn veginn eins allt árið um kring. Nema kannski á stórhátíðum þegar fólk er með fjölskyldunni og það er lítið að gera. Og þó, ætli þeir sem eru einmana og stunda hórlífið vilji það ekki frekar á stórhátíðum?

Allavega. Prófin kláruðust í gær svo ég hef verið frjáls og fullur síðan í gær. Nema ég var eiginlega ekkert fullur í gær, fór eiginlega bara að sofa um átta leytið. Og varð ekki frjáls fyrr en í dag, því frá níu í morgun og til tvö var ég á fundum uppí skóla.

En frjáls er ég... alla vega þar til ég byrja að vinna eftir nokkra daga. Eða fæ tölvupóst um samæfingaverkefnið mitt og þarf að byrja að vinna að því vegna þess að ég verð greinilega fyrstur til að halda fyrirlesturinn þar. Svekkjandi að hitta fólkið sem ákveður þessa hluti þegar maður er búinn í prófum og það veit að maður hefur ekkert að gera.

En já. Vegna þess að jólafellibylurinn Katrín hefur komið snemma í ár ákvað ég að gefa jólagjöfina snemma; hún er með öðru sniði en venjulega í ár en fyrir þá sem eru haldnir nýjungafælni má finna þessa gömlu góðu hér. En þeir ævintýragjörnu geta lesið um eðlisfræðina á bakvið jólasveininn.