19. desember 2006

6 :: Varúð: Falsnám

Ef það er ekki nema ein setning héðan sem fylgir ykkur út í lífið (ég ætla rétt að vona að þær verði ekki mikið fleiri en það), látið það þá vera:

Ekki fara í Formleg mál og reiknanleika.

Það er hægt að alhæfa þetta fljótlega yfir í ,,Ekki fara í tölvunarfræði'', en mér finnst það taka fókusinn pínulítið af því sem skiptir máli hér, og það er að taka aldrei, undir nokkrum kringumstæðum, námskeiðið Formleg mál og reiknanleika eða ellegar iðrast þeirrar ákvörðunar til eilífðarnóns.

Ókei, kannski ekki alveg eilífðarnóns, en alla vega í þessa þrjá daga fyrir prófið sem það tekur að læra námskeiðið. Það er eiginlega alger synd að svona skuli vera komið fyrir þessum kúrs því efnið er alveg sæmilega áhugavert. Til dæmis lærir maður þarna að allt sem tölvur í dag geta gert, og allt sem mun nokkur tímann verða hægt að gera með tölvum, má gera með litlum kassa sem rúllar fram og aftur á pappírsræmu og skrifar inn eða strokar út tákn á henni.

Interessant, non? Bölvun þessa námskeiðs felst í tvennu; annars vegar bókinni, sem er amerísk spjallbók fyrir fólk sem hefur aldrei séð formlegan hugsunarhátt á ævinni, og hins vegar kennaranum, Kúreka Norðursins. Nú á ég ekki við að Hallbjörn frá Skagaströnd sé fluttur á mölina og sé farinn að kenna tölvunarfræði, heldur er Kúreki Norðursins ekki ótvírætt ákvarðað fyrirbæri.

Eini línudansinn í lífi þessa kúreka er sá sem hann stígur hvern einasta morgunn þegar hann reynir að mana sig upp í að opna ekki bílskúrshurðina í dag. Hann er nokkurn veginn eins og lögfræðingurinn Ted úr Scrubs, nema ekki krúttlegur á sorglegann hátt, og ágætis dæmi um mann sem hefði átt að setja á beit fyrir löngu.

En ég, eins og Nick Cave í The Mercy Seat, er hræddur um að ég hafi logið að ykkur. Það er nefninlega alveg drepleiðinlegt að lesa sönnunarhugmyndir um jafngildi hlaðastöðuvéla og samhengisóháðra mála. Ég hélt þetta myndi aldrei koma frá mér, en þetta er svo mikið... rúnk.