53 :: Nýjir skór
Jæja, þá ætti eitthvað að fara að gerast hérna. Ég var nefninlega að kaupa mér fartölvu og er búinn að eyða... skemmtilegum tíma í að setja upp Ubuntu á henni og fá allt til að virka (töfrar Linux eru miklir), svo ég þarf ekki lengur að sitja á netkaffi til að skoða klám. Það er alltaf horft frekar undarlega á mann þar.
Auðvitað hef ég fjandann ekkert að segja núna, en það er svo sem ekkert öðruvísi en venjulega.
Það er samt alger snilld að vera hérna. Við erum sjö sem búum hérna í íbúðinni, plús önnur sjö stykki á hæðinni fyrir ofan, og erum búin að kynnast ágætlega svo það vantar alls ekki fólk til að tala við. Það er alveg nett Spanish Apartment stemming hérna... ætli það sé ekki betra að horfa bara á hana til að fá mynd af lífinu hér.
Ég fór í gær á svona kvöld hjá BEST þar sem allra landa kvikindi komu með einhverja rétti frá heimalandi sínu og drukku bjór. Ég kom með grjónagraut sem hvarf um leið og ég snéri mér við, en ég vildi óska að ég hefði fengið meira en dagsfyrirvara, þá hefði ég getað reddað virkilega ógeðslega íslenska matnum. Svið og rotinn hákarl er fín leið til að kynna fólk fyrir Íslandi.
Jebb... þannig ég er bara þunnur heima að hlusta á Fantômas. Í hnotskurn er lífið sem sagt eins og ódýr amerísk framhaldsmynd; sama rugl á nýjum stað.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli