16. ágúst 2007

42 :: Il pleut á ma vie

Jebb, ég er á leiðinni til Frakklands.

Mér hefur ekki liðið svona illa í mörg ár. Bjöggi, sem ég veit ekki hvað ég gerði til að verðskulda sem vin, reddaði mér algerlega með að draga mig á fyllerí með Bandarísku rokkbandi.

Þótt það hafi gjörsamlega reddað kvöldinu líður mér samt illa yfir því sem koma skal... ég er bara þannig að ég meika ekki að halda sambandi við stelpur sem ég hef verið hrifinn af; mér finnst það of sárt og tilgangslaust. Ég meina, hvernig í ósköpunum á maður að komast yfir manneskju sem maður heyrir reglulega frá?

Ég hef oft varið af ástríðu að tónlist sé mín persónulega sáluhjálp, og núorðið veit ég vart af aðstæðum sem ég á ekki svar við. Í allt kvöld hefur mig langað að hlusta á nákvæmlega eitt lag.

Elliott Smith - See you later