21 :: Mind the gap
Ég er að lesa mjög áhugaverða og skemmtilega grein eftir gaur sem heitir Paul Graham. Hann er gamall tölvulúði sem bjó til það sem í dag heitir Yahoo! Store og hefur gaman af því að skrifa greinar sem hann birtir á heimasíðu sinni.
Þessi sem ég er að lesa heitir Mind the gap og er um skiptingu auðs í nútíma þjóðfélagi og hvort að vaxandi bil milli þeirra fátæku og ríku sé áhyggjuefni. Í mjög stuttu máli finnst honum að þetta sé ekkert til að hafa áhyggjur af og ég er persónulega sammála honum. Frekar en að fara að útlista einhverjar ástæður þess hér bendi ég þér á að lesa bara greinina, það tekur bæði ekkert svo langan tíma og hún er skemmtilegt mótvægi við einhliða umræðuna sem er ríkjandi í þjóðfélaginu í dag. Tilvitnun sem lýsir hugarástandi greinarinnar ágætlega er:
Materially and socially, technology seems to be decreasing the gap between the rich and the poor, not increasing it. If Lenin walked around the offices of a company like Yahoo or Intel or Cisco, he'd think communism had won. Everyone would be wearing the same clothes, have the same kind of office (or rather, cubicle) with the same furnishings, and address one another by their first names instead of by honorifics. Everything would seem exactly as he'd predicted, until he looked at their bank accounts. Oops.